4. juli 2009
480. Roskilde laugardagur
Dagurinn byrjadi illa, og var mjög leidinlegur og svona. En svo fór ég á Håkan Hellström med Jakob og Pernille, og tad var frábært!! Ég vard svo glöd, og mér leid svo vel. Tad vard bara allt frábært. Fór loksins á tónleika hérna í ár, sem mér fannst ædi. Svo adeins seinna fórum vid Jakob og hellingur af vinum hans á Gogol Bordello. Og tad voru tveir bestu tímar ævi minnar, næstum tví! Tetta var SÅ fedt! Svona balkantónlist, og vid stórum mjög framarlega og ég dansadi svo mikid! Núna er ég treytt í fótunum.
Klukkan er næstum tví 11 og ég er bara edrú. Ég er ekki búin ad drekka mikid hér. Fyrstu tvö eda trjú kvöldin fór ég ad sofa um 12 eda 1 leytid, tví ég var treytt og langadi bara ad sofa. Sem sumum fannst skrítid...
Ég sá líka Tim Christensen í dag og Lily Allen. Í gær sá ég Faith No More, Nick Cave, Nine Inch Nails og Analogik. Mér fannst teir tónleikar ekkert spes. Eda svo sem allt í lagi og áhugaverdir. En fékk ekki svona vá tilfinningu. Ekki eins og Jakob sem fannst tetta flest allt alveg magnad.
Tessi Roskilde er búin ad vera mun ödruvísi en hin tvö. Ég tekki fullt af fólki og er búin ad kynnast tónokkrum vinum Jakobs. Ég vinn 3 x 8 tímar. Og svo líka tad ad afi lést, og ég vard ad breyta flugi og fá frí úr vinnu. Og tad var á tridjudeginum og thá vann ég úti í 9 tíma, og svo grét ég heima í tjaldinu mínu seinna um kvöldid. En svo enn seinna vard gaman. Taladi heilmikid. Kvöldid eftir var líka gaman. Svo var fimmtudagskvöld tar sem ég var ad vinna. Í gær föstudagur, var ég á tónleikasvædinu. Lau og sun fór ég snemma ad sofa.. Og man ekki eftir mánudeginum. Held ég hafi líka farid snemma ad sofa tar...
Ég er ad reyna ad rifja upp, tví ég hef jú varla bloggad tví midur...
Nú langar mig mest ad fara bara ad sofa, en ætla ekki ad gera tad strax... Ætla ad kíkja á tvo tónleika. Ég labbadi í annad skipti um ein í dag. Og thá hitti ég Kjartan og Elsu. Hef einu sinni ádur labbad adeins um ein og thá hitti ég Becker. Og svo í gærkvöldi labbadi ég ein heim, og taladi vid heilmarga á leidinni. Finnst svona svo gaman :)
En ég sko fer til Íslands á mánudaginn, beint hédan...
28. juni 2009
479. Sunnudagur á Roskilde
Hegnet væltede allerede um 9 leytid í gærkvöldi, en átti fyrst ad gera tad í morgun klukkan 8. Vid voum búin ad bída á bidstadnum í svona 3 korter og allt í einu hlupu allir og hrópudu løb! Thá voru strákarnir ad færa bílinn, tannig ad vid hlupum bara trjár stelpur. Eda löbbudum hratt, tad var ekki hægt ad hlaupa... Og vid fengum fráábæran stad!! :) Vid erum svo frábærar:)
Tad er svooo gott vedur:) Gott ad thú ákvadst ad fara ekki Hlíf ;) Neei grín :) En tad á vist ad rigna pínu á morgun. En tad er bara fínt. Tad er svo mikid støvryk! Ég lít strax út fyrir ad hafa verid hér lengi held ég. En tad er bara mjög gaman.
Ég fór bara ad sofa um 1 leytid í gærkvöldi. Var svo treytt. En já, ég er ad leita ad pantsamlerpoka svo vid getum safnad pant, sem ég get svo tekid tegar ég á ad vinna. En ég er farin til baka í lejren :)
Sjitt hvad tad er heitt!!
Ég er med heilt rúgbraud og nutella, svo ég held ég muni ekki eyda miklum peningi hér. Frábært!:)
27. juni 2009
478. Roskilde!
Við höfðum tvær grænmetirlasagner mismunandi, en við munum ekki hvað var í hverri. Okay vó málfræðin er aaalveg. Okay Ida rétti mér undirbúningslistann okkar fyrir partýið. Önnur með porrer, blomkål og sveppum og svo tómatsósu. Sko sósu úr tómötum. Í hinni var laukur, aubergine og spínat. Og svo var hvít sósa með hytteost í báðum. Svo vorum við með nöddesteg. Pastasalat, venjulegt salat og ofnbakaðar kartöflur, sem voru drullugóðar, og sem ég bjó til. Og svo gleymdum við brauðinu, en það var bara allt í lagi.
Anders, sem var búinn að segjast ekki komast, hringdi á dyrabjölluna seinna um kvöldið og Signe líka, líka úr lýðháskólanum. Hann var í heimsókn hjá henni, og þau höfðu heyrt tónlist niðrá götu og ákveðið að crasha partýið. Og svo fattað að þetta væri kannski mitt og mikið rétt! :) En sko við búum á sjöttu hæð, og þau heyrðu tónlist niðrá götu. Við vorum jú líka báðar íbúðir með opnar dyr. Ég veit ekki hvernig maður segir það rétt.
En já. Ég fer á Roskilde í dag!! Ég hef aldrei áður farið svona snemma. Við erum vist að fara að bíða í röð í kvöld. Við Ida, og Sofie vinkona hennar, keyrum með Jeppe. Hann sagðist vera með svo mikið dót að hann nennti ekki í lest og spurði svo hvort við vildum keyra með.
Ég er ekkert búin að undirbúa. Varla búin að hlusta á tónlistina sem verður. Ég ætlaði það annars... En jájá... Ég fer með sæng, en keypti luftmadras.
Jább, við Ida erum að fara að borða morgunmat. Ég vona að ég muni skrifa á Roskilde. Ég held að þetta verði soldið öðruvísi í ár, þar sem ég mun búa í lejr, með fólki sem ég þekki. Og mun þekkja mun fleiri á hátíðinni í ár, heldur en í fyrra og hittífyrra. Og er að fara að vinna þarna. 3x8 tíma vaktir. Nenni því ekki. En þetta gæti orðið mjög gaman.
Okay bæ :)
Og já það er ótrúlega gott veður. Alveg skrítið hvað það var heitt í gærkvöldi. Svona eins og í útlöndum;)
21. juni 2009
477. Indflytningsfest
Við Ida héldum jú indflytnings/födselsdagsfest í gær. Ég vann frá 8 til 2 og svo þegar ég kom heim þá elduðum við og fórum í sturtu og svona, og það var pínu stress. Frænka Idu kom líka og hjálpaði. En þetta var alveg fullkomið, allt tilbúið þegar fólk kom. Eða ég átti eftir að mála mig en það var jú allt í lagi. Velkomstdrikken var ógjó góð! og mikið af henni. Maturinn var frábær og allir sögðu að þetta bragðaðist vel. Við vorum 13, því einn varð veikur og eitthvað. Svo eftir mat fórum við í opvaskelegen, sem ég hef vist bloggað um áður, og var svo velheppnaður! Svo bara sat fólk og drakk og talaði. Það voru jú rosa margir sem þekktust ekki, en þetta var alveg frábært! Strákurinn við hliðina á hélt líka partí, og þar voru þónokkrir sem voru líka í partíinu sem við Ida fórum í og munum varla. Þannig að seinna um kvöldið var fólk bara báðu megin, og það var svooo gaman! Fólk reykti på bagtrapperne, og þar eru jú hurðir inní báðar íbúðir, þannig að maður gat labbað svona í hring... Ekki það að ég gerði það samt. En vaaá það var svo gaman!! Ég hef ekki hugmynd um hvenær ég fór að sofa... Og það veit ég annars alltaf. En það var vist mjöög seint, og Ida og Jakob lágu þá í rúminu mínu. En það er jú svo stórt. En kræst ég var jú að skipta um sængurföt. Núna er ég á leiðinni í sturtu og pabbi og Judy kíkja um heimsókn um tvöleytið. En oh my god sko!! Ég er líka svo ánægð með hvað þetta heppnaðist vel!! Við erum líka búin að nota mikinn tíma í að undirbúa, þannig að það er alveg magnað!! Við fengum stavblender, bolla, vasa, brödkasse sem er svooo kúl!, te, mola, sápu og ég man ekki meir... Jú og möffinsforme!!
Já og!!! Það er einhver sem hefur ælt! Okkur finnst það svo (Ida; det er så stenet at han slår græs så tidligt om morgenen!! Klukkan er tólf...) frábært!! Og það er fyndið. Og fáránlegt að okkur finnst það. Ég spurði Idu núna af hverju okkur finnst það... Svo sagði hún; det er jo mega nice! Hahah:) Og svo núna; det er godt nok ogs åndsvagt.
Ég er virkilega svooo ánægð með hvað þetta heppnaðist vel!! Ég held líka að allir hafi skemmt sér vel. Nema kannski tvær sem tala soldið lítið... En vá ég talaði mikið. Og ég segi stundum svo fáránlega hluti við fólk sem ég þekki varla. Ég var líka ógeðslega mikið inni við hliðina á. Þar dansaði fólk.
Æh hahahahah Ida var að tala heillengi um að hún setti svo oft vatn fyrir ofan rúmið, eða sko á svona púða og sest svo í rúmið svo það sullast. Og svo gerði hún það núna! Ahaha! :)
Ég var eiginlega soldið mikið ein þar inni. Eða sko ekki ein, en ein úr okkar partíi. En var nottlega líka mikið hér inni. En ég held að við Ida höfum farið virkilega seint að sofa, þannig að það var jú nægur tími til að tala við alla og vera allsstaðar. Svo dansaði ég og einhverjir 5 strákar inni við hliðina á helimikið. Fólk dansaði ekki svo mikið inni hjá okkur, en samt smá. Mér er mjög illt í hnakkanum, en ég held nú ekki að það sé út af dansinum. Því þannig dansaði ég ekki. Vona ég...
En jæja ég er farin í sturtu.
Undirbúningur
19. juni 2009
476. Þreytt!
Ég er nánast ekkert búin að taka til í dag... Við keyptum inn og elduðum í dag. Í gær keyptum við líka inn og elduðum og bökuðum þrjár kökur. Og blésum blöðrur og hengdum upp og lögðum á borð. Ætlum að skipta um dúk samt... Æh ég verð að fara að gera eitthvað! Ég held ég hafi aldrei áður verið svona þreytt eins og núna. Meira svona, eftir erfiða æfingu eða eitthvað og það er allt öðruvísi. Ég lít líka þreytt út, það segir fólk allavega.
Í dag í vinnunni var dóttir yfirmannsins sem vinnur líka stundum núna, sem þýðir að ég fái færri tíma. Svo voru hún og Zane að tala um bíómyndir og svo spurði hún hana hvort hún horfði á Friends. Já. Og Sex and the city? Já. Svo spurði hún mig; du ser ikke sex and the city vel? Nej. Det tænkte jeg nok. Hvað á það að þýða! Ég var ómáluð og í afslöppuðum fötum. Kannski það meðal annars. Ég sagði Zane þetta seinna, og hún skildi hana samt. Ég væri ekki svona mjög stelpuleg, eða sko svona gella eða eitthvað. Sem er jú mjög satt. En mig langar stundum að vera stelpulegri. Svo sagði Zane að ég væri skemmtileg stelpa. Hún hélt það allavega. Hafði séð myndir á facebook og þar leit ég út fyrir að vera skemmtileg. Þá varð ég glöð. Já.
Klukkan er eiginlega orðin allt of margt. En ég þarf þó fyrst að mæta klukkan 8 á morgun. Gat ekki fengið frí! Ég hafði sofið mjög mikið fyrir fællesafmælið fyrir tveimur vikum, og það fyrsta sem Sonja sagði þegar hún sá mig var eitthvað með, mikið líturðu vel út. Þannig að maður þarf vist að sofa nóg... Þetta blogg sökkar ég veit, en mig langar að skrifa.
Ég fer sko ekki með sæng á Roskilde! Það skilur engin af hverju fjölskylda mín vill ekki senda mér svefnpokann minn, en svona eru fjölskyldur vist ólíkar.
Við Ida erum með hátalarana hans Jakobs í láni, því við eigum ekki. Og það er frábært að geta hlustað á tónlist almennilega.
Mér fannst svooo ömurlegt í vinnunni í gær. En ágætt í dag, og næstum því gaman í fyrradag. En ef ég fer ekki í skóla í haust, þá verð ég að finna aðra vinnu. Ég held að mér sé sama hvort ég komist inn núna eða ekki. En svo sá ég á facebook að einn hafði fengið svar og komist inn. En ég hef ekkert heyrt, og er greinlega ekki alveg sama. Því ég er soldið leið yfir þessu. En svo samt langar mig ekkert sérstaklega í skóla núna. Mundi alveg vilja bíða eitt ár held ég. Og verða betri í dönsku. En þá verð ég að finna aðra vinnu! Er orðin pirruð á því að vinna með fólki sem er lélegri en ég í dönsku. Og skilja mig ekki þegar ég vanda mig ekki við að nota einföld orð og tala skýrt. Verð jú aldrei betri þá! Helvítis...
Mig langar svo mikið að leggjast upp í rúm og sofa! Mér er líka illt í bakinu út af vinnunni. Er bara farin að taka til núna! Ég verð. Og græt þá bara á meðan eða eitthvað, af udmattelse. Ég verð líka að borða fjölbreyttara, og kjöt oftar. Æh blah!
14. juni 2009
475. Ehm
Það voru ókeypis opnir tónleikar um helgina á Store torv. Þannig að ég fór á Oh No Ono, Gypsies og Teitur tónleika. Það var mjög gaman. Tónleikar eru frábærir.
Ég lá á bekknum sem er á fyrstu tveimur myndunum. Ég veit að síðasta myndin er ekki góð, en samt ákvað ég að hafa mynd af mér líka. Já. Góða nótt
11. juni 2009
474. Fællesafmæli
Ég er rosalega léleg í að blogga þessa dagana. Það er líka svo mikið að gera. Eða ég geri mikið. Ligg ekki bara eftir vinnu lengur ... :)
En, afmælið var bara mjög skemmtilegt. Mér finnst þetta eldra fólk sem ég hélt veisluna með of ráðríkt stundum, og haga sér eins og ég væri svona tíu árum og ekki bara tveimur árum yngri. En það var bara hálftími sem ég var mjög ekki glöð yfir þessu, og annars var bara rosarosa gaman í afmælinu!:)
Já og Elsa, takk fyrir tilboðið:) En ég hef ákveðið að fara ekki klippingu á næstunni, hef bara ekki efni á því eins og er...
Hér er video af þeim að syngja. Ég er reyndar ekki búin að fá leyfi til að setja þetta á bloggið mitt... En allavega, svona lög eru skemmtileg:) Ég skil vel að íslensku vinum mínum finnist gaman að hlusta á íslensk lög og lög sem maður heyrði þegar maður var lítill. Og nú er svoooo gaman að heyra þannig dönsk lög!!:) En svo eru lög sem þau hér heyrðu á meðan að ég bjó úti, sem ég þekki ekki. En já, maður getur ekki fengið allt...
Ég sótti um nýtt vegabréf í gær, því gamla rann út í gær. Og svo fór ég í bankann, og fyrst til ljósmyndara. Núna held ég að ég eigi ekki eftir að redda fleiri svona stórum og mikilvægum hlutum... Vona það allavega. Nú eru bara svona lítil verkefni, eins og að koma mér almennilega fyrir í herberginu mínu og taka til, halda veislu þarnæstu helgi. Eða jú! Redda mér svefnpoka. Æltaði að spyrja mömmu hvort hún gæti sent minn til mín. Er jú að fara á Roskilde! Og það er soldið asnalegt að kaupa þegar ég á... Og hef líka efni á því. Mamma?:) Getur sent með afmælisgjöfinni sem ég fæ frá Silju (og kannski líka frá Ívari) og spara þannig...
Ég er drulluþreytt núna. Svaf nánast ekkert lau nótt og sofnaði fyrst um 11 sunnudagskvöld. En svo í fyrradag þá ætlaði að leggjast í nokkra klukkutíma en ég bara sofnaði rúmlega 6 og vaknaði svo kl 1 að nóttu til, burstaði tennur og svaf svo til hálf 9 eða eð. En er samt þreytt núna. Klukkan varð líka hálf 12 í gær áður en ég sofnaði, og ég mæti jú klukkan 7 í vinnuna. En á morgun á ég fyrst að mæta klukkan 8. Ég vann bara til 13.15 í dag, því dóttir yfirmannanna þarf vist líka að fá að vinna.Nú set ég líka nokkrar myndir inn.
Það rignir soldið mikið þessa dagana. Eða pínu í gær og meira í dag. En það er bara fínt. Ég þarf ekki að vera mikið úti... Við Ida borðuðum aftur í Botanisk Have síðasta mánudag. Það er huggulegt.
6. juni 2009
473. Afmæli í kvöld!
Var í fríi í gær, er í dag og verð á morgun!:) Svaf allan daginn í gær, og gerði ekkert. Ég þurfti þess líka. Er búin að gera svo mikið síðustu tvær vikur. Vinna alla daga nema tvo, halda afmæli og vera rosa mikið með Nao og Pernille, og fór í bæinn og mætti í vinnu daginn eftir. Og það bara tekur á:) En er gaman líka.
Í kvöld höldum við Pernille og Anders afmæli. Við erum að fara að versla á eftir, en ég veit ekki hvenær... Á líka eftir að taka til í herberginu mínu, en setti skrifborðið saman í morgun :) Það eru samt fullt af auka skrúfum og ein plata sem ég veit ekki hvert á að fara...
Mig langar að segja frá því hvað ég hef gert, en það er bara svo mikið... Og vil líka setja myndir inn, en hef ekki tíma núna. En já allavega...
Mig langar í klippingu! Eða ég þarf þess. Hárið er ansi slitið. Klippti pínu í gær en ekki mikið. Mig langar soldið í krullur. Svona permanent. En það kostar 500 kr, og ég hef nú eiginlega ekki efni á því. En ég er bara svo léleg í að gera eitthvað við hárið, og ef það eru krullur þá er eitthvað gert...
30. maj 2009
472. Voða glöð aftur!
Við Ida fórum í Mindeparken í gær því Jakob og vinir hans og fleiri voru þar og það var svoo gaman! Það var einn sem hafði búið í Tranbjerg, og einn sem æfði sund í AGF. Og þekkti alveg nokkra sem ég þekkti. Og gamli þjálfarinn minn varð þjálfarinn hans eftir að ég flutti. Snilld alveg! Það var svoo gaman að tala við hann. Hann hætti líka að æfa þegar hann var um 15 og svona. Svo í gær líka, var einn sem hafði verið í straksafklaring, og kom og talaði við mig. Svo sagðist hann hefði viljað tala við mig þarna í straksafklaringen og eitthvað með að honum væri það kalt að hann ehm rystede, eða kannski var það vegna þess að hann væri nervøs. Og ég bara arh. Og hætti að vera of brosandi og sæt, hah!;) En allavega, mikið er ég ehm, blind stundum.
Það varð frekar kalt, því það hafði verið svo heitt. Við Jakob löbbuðum heim og hittum svo Idu og vini hennar í bænum. Vorum samt bara í smástund, og fórum svo 3 heim að borða og svo að sofa. Og klukkan varð hálf 3 og ég mætti í vinnu kl 8. Og finn fyrst núna að ég er þreytt. Pernille segir að ég eigi að sofa, því hún nennir ekki að hlusta á mig bulla í allt kvöld, eh;)
En er farin að sofa...
28. maj 2009
471. Skapsveiflur
Fór að passa frænda minn í fyrradag sem var að eignast lítinn bróður. Og mér líkar bara alls ekkert vel við lítil börn. Þetta var ekkert gaman. Ég var líka dauðþreytt, og tvisvar pínu nálægt því að tárast bara. Varð tvisvar heitt í framan, allavega þegar mamman spurði mig hvort ég vildi halda á vikugamla barninu. Ég svaraði ekki strax, en sagði já. Því það á maður vist að segja... Svo sagði hún að ég þyrfti þess jú ekki ef mig langaði ekki. Þannig að þá sagði ég nei, og gat ekkert meira sagt. Því þá hefði ég bara byrjað að gráta. Var fyrst farin að sofa rúmlega 12 kvöldið áður, og vann frá 7 til hálf 4. Þannig að ég var líka þreytt. Svo á leiðinni í rútuna þegar ég fór heim kl. rúmlega 10 um kvöldið hljóp ég og grét. Og það var svona alvöru hryllingsmyndaveður. Myrkur, skýjað og vindur. Og skýin hreyfðust rosa hratt. Svo táraðist ég stundum í rútunni. Það var af því að ég er ógeðslega svekkt yfir því að ég skuli vera svona. Mig langar að líka vel við lítil börn. En mér bara finnst óþægilegt og veit ekkert hvað ég á að gera ef þau gráta, og það er sérstaklega erfitt þegar ég er þreytt.
Nú varð ég þreytt, af því að skrifa um þetta. Fór á pósthúsið áðan, og ætlaði nú að sækja hinn helminginn af skrifborðinu, en stelpan svarar ekki.
Ég get ekki tengst netinu í tölvunni minni, eða sko hennar mömmu. Er búin að fara niður fimm sinnum eða eitthvað og banka hjá underboen. En þau eru aldrei heima. Þau voru samt heima áðan, því ég heyrði tónlist. En þau heyrðu væntanlega ekki í bjöllunni, því þau hørte meget høj musik. En svo þegar ég var á leiðinni til baka frá pósthúsinu, sá ég undirboen og naboen okkar, og einn vinur þeirra sem var líka í þessu matarboði sem við Ida fórum í. En þeir voru hinu megin við veginn og fullt af bílum. Svo þegar ég ætlaði yfir veginn hjá ljósunum, sá ég að þeir voru komnir yfir. Og ætlaði nú ekki að fara að kalla á þá. Þeir eru næstum því of töffir til þess að maður þorir því ;)
En já, þyrfti eiginlega að taka til inni hjá mér... En ætlaði jú að sækja skrifborðið svo ég geti komið öllu fyrir. En já...

Ida æði var búin að leggja á borðið áður en hún vakti mig með söng



